Stjórnarformaður GG tilnefnd til stjórnunarverðlauna Stjórnvísis 2023

Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi voru veitt í fjórtánda sinn 20. febrúar við hátíðlega athöfn á Nauthól að viðstöddum forseta Íslands.

Brynhildur S. Björnsdóttir, stjórnarformaður GG Verk, var í hópi þeirra stjórnenda sem tilnefndir voru til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísis í ár. Fyrir það erum við virkilega þakklát og stolt.

Markmið Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi er að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda, örva umræðu um faglega stjórnun og stuðla að aukinni fagmennsku á sviði stjórnunar á Íslandi.