Guðrún Ólafía nýr mannauðsstjóri GG Verk
Eins og fram kemur í Viðskiptablaðinu hefur Guðrún Ólafía Tómasdóttir verið ráðin í starf mannauðsstjóra GG Verk.
Guðrún Ólafía mun sjá til þess að við séum örugglega alltaf að setja fólk í fyrsta sæti. Enda hokin af reynslu eftir að hafa m.a. starfað í 13 ár sem mannauðstjóri DHL Express Iceland og setið þar í framkvæmdastjórn. Þar áður starfaði hún hjá sama félagi sem gæða- og umbótastjóri auk þess að vera aðstoðarmaður framkvæmdastjóra árin 2008-2009. Þá hefur hún einnig setið í stjórn DHL síðan 2017.
Guðrún hefur sérhæft sig í Lean aðferðafræðinni og um leið haft umsjón með innleiðingu og viðhaldi á ISO9001 gæðastjórnunarkerfinu á sínum fyrri vinnustað en GG Verk var annar byggingaverktakinn á landinu til að öðlast þá vottun árið 2015.
Við teljum okkur vera ótrúlega lánsöm að hafa fengið Guðrúnu til liðs við okkur, enda býr hún yfir ómetanlegri reynslu í mannauðsmálum. Ráðning hennar er mikilvægur liður í því að við getum haldið áfram að setja fólk í fyrsta sæti og viðhaldið jákvæðri og árangursríkri fyrirtækjamenningu, í ört vaxandi fyrirtæki.
Guðrún er mikil fjölskyldumanneskja og við erum því alsæl með að hafa fengið hana inn í GG fjölskylduna okkar.