Við erum að ráða!

Við erum með trausta verkefnastöðu næstu árin og fyrirsjáanlega 50% stækkun á þessu ári. Við erum því að ráða í stjórnenda-, stoð- og framleiðsluteymi okkar.

Intellecta sér um ferlið á ráðningu lykilstjórnenda og stoðþjónustu og hvetjum við alla sem hafa áhuga, hæfni og reynslu í störfin að sækja um á vefsíðu þeirra.

Á Alfred.is auglýsum við einnig eftir smiðum og aðstoðarmönnum þeirra. Sækið endilega um hér og sláist í hópinn!

Við erum svo lánsöm að starfa með frábæru teymi og erum með mjög háa starfsánægju. Við leggjum ríka áherslu á þroskandi og öruggt starfsumhverfi, þar sem við setjum fólk í fyrsta sæti.