Brynja nýr fjármála- og aðstoðarframkvæmdastjóri GG!
Brynja Blanda Brynleifsdóttir hefur tekið við starfi fjármála- og aðstoðarframkvæmdastjóra hjá GG Verk ehf.
Brynja hefur farsæla og viðamikla reynslu af fjármálastjórnun og almennum stjórnunarstörfum frá félögum á borð við A4/Egilsson ehf, Sjöstjörnunni ehf/Subway og Latabæ. Þá hefur hún lagt stund á MBA og B.Sc. nám í viðskiptafræði og stjórnmálafræði.
Helgi Gunnarsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra en hann er jafnframt stofnandi og meðeigandi félagsins. Um leið lætur Brynhildur S. Björnsdóttir af störfum en hún hefur gegnt því starfi síðan á vormánuðum 2014.
Við bjóðum Brynju hjartanlega velkomna til starfa!