ISO 9001 vottunin nálgast óðfluga!
Í dag lauk BSI á Íslandi við aðra úttekt á ISO 9001 gæðakerfi GG. Við hófum innleiðingu á kerfinu í janúar á þessu ári og stefnir allt í að við munum ná markmiðum okkar um vottun á sama ári! Enda með fáránlega góðan mannskap hjá okkur - sem taka þessum breytingum af jákvæðni og miklum fúsleika.
Haldi siglingin áfram á þessum hraða - verðum við annar byggingaverktaki á Íslandi til að öðlast slíka vottun - ásamt ÍAV ehf.
Sturluð gæðagleði!
Brynhildur S. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri og Gunnar Gunnarsson jr., gæðastjóri - fara yfir gæðamálin með Unnari verkstjóra á verkstað GKG.
Gunnar Gunnarsson, gæðastjóri GG og Örn Alexandersson, sérfræðingur og úttektaraðili BSI á Íslandi fara vel yfir gæðamálin á verkstað.
Allir sammála um góða úttekt...jíhaaaa!